Atletico Madrid 1 - 1 Real Madrid
0-1 Karim Benzema ('9 )
0-1 Antoine Griezmann ('22 , Misnotað víti)
1-1 Luciano Vietto ('83 )
0-1 Karim Benzema ('9 )
0-1 Antoine Griezmann ('22 , Misnotað víti)
1-1 Luciano Vietto ('83 )
Atletico Madrid og Real Madrid gerðu 1-1 jafntefli þegar liðin mættust í stórleik umferðarinnar í spænsku La Liga í kvöld.
Karim Benzema kom gestunum í Real Madrid yfir strax á 9. mínútu og ekki löngu síðar klúðraði samlandi hans, Antoine Griezmann, víti. Staðan var því 1-0 fyrir Real Madrid í leikhléi.
Heimamenn jöfnuðu hins vegar metin á 83. mínútu, þegar allt virtist stefna í sigur lærisveina Rafa Benítez, en þar var á ferðinni Luciano Vietto. Lokatölur urðu 1-1.
Real Madrid er því í 2. sæti La Liga með 15 stig eftir sjö leiki á meðan Atletico Madrid er með 13 stig í 5. sætinu.
Athugasemdir