Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 04. október 2015 17:41
Alexander Freyr Tamimi
Wenger: Við komum þeim á óvart
Wenger gat verið sáttur með sína menn.
Wenger gat verið sáttur með sína menn.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, brosti sínu breiðasta eftir frábæran 3-0 sigur sinna manna gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Arsenal byrjaði leikinn frábærlega og innan 20 mínútna var Alexis Sanchez búinn að skora tvö mörk og Mesut Özil eitt. Fleiri reyndust mörk leiksins ekki verða en þessi þrjú voru meira en nóg fyrir Arsenal.

„Við gáfum þeim engin marktækifæri og það var mjög mikilvægt. Við komum þeim á óvart með byrjun okkar," sagði Wenger eftir leikinn.

„Frá Petr Cech til Theo Walcott, það stóðu sig allir frábærlega. Ég hef stýrt mörgum góðum liðum en aldrei verið með lið sem spilaði 60 leiki alla jafn vel. Maður verður að sætta sig við að við erum mennskir."
Athugasemdir
banner
banner
banner