,,Það er mikill styrkur að Pálmi skyldi koma. Ekki bara inni á vellinum heldur líka fyrir utan því hann er ekki bara frábær fótboltamaður heldur er hann frábær karakter líka," sagði Bjarni Guðjónsson þjálfari KR eftir að Pálmi Rafn Pálmason samdi við félagið í dag.
,,Eftir fyrsta fund fannst mér frekar líklegt að hann myndi koma þrátt fyrir tilboð erlendis frá og eitthvað hérna heima líka."
,,Eftir fyrsta fund fannst mér frekar líklegt að hann myndi koma þrátt fyrir tilboð erlendis frá og eitthvað hérna heima líka."
Gary Martin sagði í viðtali á Fótbolta.net í gær að KR þyrfti að bæta við sig leikmönnum til að geta verið í toppbaráttu næsta sumar.
,,Við erum ekki í því að svara köllum hans. Það var ljóst að við þurftum styrkingu. Við höfum misst leikmenn og þurfum að styrkja okkur."
,,Við erum búnir að fá Rasmus Christiansen, Hörð (Fannar) og núna kemur Pálmi. Það á eftir að bætast eitthvað örlítið í hópinn en það verður ekki mikið meira."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir