Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 04. desember 2016 13:38
Arnar Geir Halldórsson
Ítalía: AC Milan í annað sæti eftir dramatískan sigur
Lapadula í þann mund að skora sigurmarkið
Lapadula í þann mund að skora sigurmarkið
Mynd: Getty Images
AC Milan 2 - 1 Crotone
0-1 Diego Falcinelli ('26 )
1-1 Mario Pasalic ('41 )
1-1 M'Baye Niang ('53 , Misnotað víti)
2-1 Gianluca Lapadula ('86 )

Fyrsta leik dagsins í ítalska boltanum er lokið en þar var Crotone í heimsókn hjá gamla stórveldinu AC Milan.

Diego Falcinelli kom gestunum óvænt yfir á 26.mínútu en Crotone hefur aðeins unnið einn leik á tímabilinu.

Mario Pasalic jafnaði fyrir AC Milan skömmu fyrir leikhlé og snemma í síðari hálfleik fékk M´Baye Niang kjörið tækifæri til að koma heimamönnum yfir en Alex Cordaz gerði sér lítið fyrir og varði vítaspyrnu Frakkans.

Gianluaca Lapadula kom AC Milan til bjargar skömmu fyrir leikslok og tryggði þeim þar með sigur sem fleytir liðinu upp í 2.sæti en Roma getur þó endurheimt annað sætið með sigri síðar í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner