Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 04. desember 2016 18:59
Kristófer Kristjánsson
Koeman: Þetta var sanngjarnt
Koeman var sáttur í dag
Koeman var sáttur í dag
Mynd: Getty Images
Ronald Koeman var að vonum sáttur eftir að hans menn í Everton björguðu stigi á heimavelli gegn Man Utd á 89. mínútu þökk sé marki Leighton Baines úr vítaspyrnu.

Koeman var ánægður með frammistöðuna heilt yfir og þá staðreynd að hann hefur ekki enn tapað á Goodison Park.

„Við vorum jákvæðir í dag og vel skipulagðir. Við gerðum Man Utd erfitt fyrir," sagði hann í viðtali við BBC.

„Við gefum mark útaf eigin mistökum en eitt stig var að lágmarki það sem við áttum skilið. Við skiptum sóknarmönnum inn á og tókum áhættu; De Gea átti tvær ótrúlegar vörslur sem komu í veg fyrir að við skoruðum fyrr."

„Þetta voru sanngjörn úrslit. Við erum ósigraðir á heimavelli og ánægðir með það," sagði Koeman að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner