Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 04. desember 2016 10:30
Arnar Geir Halldórsson
Sér ekki eftir að hafa hafnað Chelsea
Nainggolan líður vel í Róm
Nainggolan líður vel í Róm
Mynd: Getty Images
Belgíska hörkutólið Radja Nainggolan kveðst ekki sjá eftir því að hafa sagt nei við Chelsea í sumar.

Antonio Conte lagði mikla áherslu á að reyna að fá þennan 28 ára miðjumann með sér til Englands en Nainggolan sagði nei.

„Ég sé ekki eftir því að hafa hafnað því að ganga til liðs við Chelsea. Ég tók þessa ákvörðun því ég vil vera hérna og ég er ánægður með þá ákvörðun."

„Ég hef sagt það margoft áður að ég vil vinna til verðlauna hérna og ég trúi því að þetta félag geti náð árangri. Auðvitað er það alltaf gaman þegar stórlið taka eftir þér en ég sé ekki eftir neinu,"
segir Nainggolan.
Athugasemdir
banner
banner
banner