Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 04. desember 2016 14:35
Arnar Geir Halldórsson
Sviss: Rúnar Már skoraði í sigri
Rúnar Már Sigurjónsson
Rúnar Már Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Lausanne 1-2 Grasshopper
0-1 Rúnar Már Sigurjónsson (´6)
0-2 Numa Lavanchy (´32)
1-2 Francesco Margiotta (´68)

Rúnar Már Sigurjónsson var á skotskónum þegar lið hans, Grasshopper, vann góðan útisigur á Lausanne í svissnesku úrvalsdeildinni í dag.

Rúnar Már kom Grasshopper yfir snemma leiks og eftir hálftíma leik var staðan orðin 0-2.

Heimamenn klóruðu í bakkann eftir rúmlega klukkutíma leik en fleiri urðu mörkin ekki og Grasshopper því í fimmta sæti deildarinnar.

Rúnar Már er á sínu fyrsta tímabili í Sviss og hefur skorað sex mörk í fimmtán leikjum í vetur.
Athugasemdir
banner
banner