Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 04. desember 2016 14:00
Arnar Geir Halldórsson
Van Dijk falur fyrir 25 milljónir punda?
Verðandi samherjar?
Verðandi samherjar?
Mynd: Getty Images
Hollenski varnarmaðurinn Virgil van Dijk hefur verið einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á þessari leiktíð.

Þessi 25 ára gamli miðvörður er á sínu öðru tímabili hjá Southampton en hann var keyptur frá Celtic fyrir þrettán milljónir punda í september 2015.

Frábær frammistaða hans að undanförnu hefur ekki farið framhjá neinum og samkvæmt enskum fjölmiðlum hafa Man Utd, Man City og Everton mikinn áhuga á að næla í kappann.

Van Dijk er reyndar samningsbundinn Southampton til ársins 2022 en samkvæmt heimildum dagblaðsins Sunday People er riftunarákvæði upp á 25 milljónir punda í samningi Hollendingsins.
Athugasemdir
banner
banner