Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 04. desember 2016 17:00
Arnar Geir Halldórsson
Zidane jafnaði útivallarmet Mourino
Zinedine Zidane
Zinedine Zidane
Mynd: Getty Images
Real Madrid jafnaði met sitt yfir flesta útileiki í röð án taps þegar liðið gerði jafntefli við Barcelona á Nou Camp í gær.

Luis Suarez kom Börsungum yfir í upphafi síðari hálfleiks og leit lengi út fyrir að það yrði eina mark leiksins. Sergio Ramos kom sínum mönnum til bjargar nokkrum mínútum fyrir leikslok og jafnaði metin.

Real Madrid hefur nú leikið sautján útileiki í röð í öllum keppnum án þess að tapa og er það jöfnun á meti sem liðið setti undir stjórn Jose Mourinho.

Síðasta tap Real Madrid á útivelli var þegar liðið tapaði fyrir Wolfsburg í Meistaradeild Evrópu í apríl á þessu ári.
Athugasemdir
banner
banner