Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 04. desember 2017 13:30
Magnús Már Einarsson
Goretzka ákveður sig í janúar - Man Utd hefur áhuga
Eftirsóttur
Eftirsóttur
Mynd: Getty Images
Leon Goretzka, miðjumaður Schalke, ætlar að ákveða framtíð sína í janúar. Manchester United og fleiri félög hafa sýnt Goretzka áhuga en hann verður samningslaus næsta sumar.

Schalke hefur boðið Goretzka nýjan samning sem myndi gera hann að launahæsta leikmanni í sögu félagsins.

Leikmaðurinn ætlar sjálfur að bíða með lokaákvörðun þar til í janúar en þá má hann hefja viðræður við önnur félög.

„Ég þarf sjálfur að finna hvert næsta skref á að vera. Ég þarf að hugsa milljón hluti. Ég er mjög nákvæmur og skoða alla möguleika. Ég þarf tíma," sagði Goretzka.

„Það er ekki kominn ákveðinn dagur þar sem ég tek ákvörðun en við erum að nálgast lokakaflann. Lokaákvörðun verður tekin í janúar."
Athugasemdir
banner
banner
banner