Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 04. desember 2017 14:11
Magnús Már Einarsson
Þrír ungir Skagastrákar æfa með Bröndby
Mynd: Total Football
Ísak Jóhannesson, Hákon Haraldsson og Jóhannes Harðarson héldu í dag til Danmerkur þar sem þeir heimsækja Bröndby og æfa með félaginu.

Ísak og Hákon eru fæddir árið 2003 og í þriðja flokki en Jóhannes er fæddur árið 2004 og í fjórða flokki.

Sigurður Jónsson, yngri flokka þjálfari og aðstoðarþjálfari meistaraflokks hjá ÍA, fór með strákunum til Danmerkur.

Ísak var á dögunum við æfingar hjá Brighton en hann hefur einnig verið á reynslu hjá Ajax.



Athugasemdir
banner
banner
banner