Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 05. febrúar 2016 13:14
Magnús Már Einarsson
Alfreð gæti byrjað á morgun
Mynd: Augsburg
Markus Weinzierl, þjálfari Augsburg, er ánægður með fyrstu daga Alfreðs Finnbogasonar hjá félaginu en hann kom á láni frá Real Sociedad í vikunni.

„Hann hefur staðið sig vel. Hann er afslappaður náungi og við þurfum á honum að halda," sagði Weinizierl í dag.

„Allir leikmenn þurfa tíma til að komast inn í hlutina og við pössum upp á að Alfreð fái hann."

Alfreð gæti komið beint inn í byrjunarlið Augsburg gegn Ingolstadt á morgun en leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport.

„Ég treysti Alfreð til að spila frá byrjun og líka til að koma inn á sem varamaður. Við sjáum hvað gerist," sagði Weinizierl.
Athugasemdir
banner
banner