Eiður Smári Guðjohnsen gæti verið á leið í norsku úrvalsdeildina en hann hefur verið orðaður við Molde.
Eiður Smári er án félags eftir að hafa yfirgefið kínverska úrvalsdeildarliðið Shijiazhuang Ever Bright undir lok síðasta árs.
Hann kom við sögu í öllum þrem vináttulandsleikjum Íslands í janúar og leitar sér nú að nýju félagi til að vera í formi þegar kemur að EM í Frakklandi næsta sumar.
Þjálfari Molde er Man Utd goðsögnin Ole Gunnar Solskjær en liðið endaði í 6.sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.
Athugasemdir