Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 05. febrúar 2016 11:39
Elvar Geir Magnússon
Guardiola: Get gert marga hluti í einu eins og konur
Guardiola er hæfileikaríkur.
Guardiola er hæfileikaríkur.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, þjálfari Bayern München, segir að það muni ekki trufla sig í starfi að búið er að opinbera að hann verði stjóri Manchester City eftir tímabilið.

Guardiola er 45 ára og samþykkti þriggja ára samning um að taka við stjórnartaumunum hjá City af Manuel Pellegrini í sumar.

Mögulegt er að Bayern og City mætist í Meistaradeildinni en bæði lið eru í 16-liða úrslitum keppninnar.

Guardiola hefur unnið 19 titla á sex árum sem þjálfari.

„Af hverju ætti þetta að trufla mig í starfi? Þetta er ekkert erfitt. Ég er eins og kona, ég get gert marga hluti í einu og haft stjórn á báðum aðstæðum. Ég er með góða hæfileika í þetta," segir Guardiola sem er fyrrum stjóri Barcelona.
Athugasemdir
banner
banner
banner