Guðmundur Magnússon hefur gengið til liðs við Keflavík en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í dag.
Guðmundur spilaði með HK á síðasta tímabili en þar lék hann undir stjórn Þorvalds Örlygssonar sem þjálfar í dag Keflavík.
Hinn 24 ára gamli Guðmundur er uppalinn hjá Fram en hann hefur einnig leikið með Víkingi Ólafsvík á ferli sínum.

Guðmundur hefur leikið með Keflavík í Fótbolta.net mótinu að undanförnu.
Hann er í leikmannahópi Keflavíkur sem mætir HK í úrslitaleik í B-deild Fótbolta.net mótsins klukkan 18:00 í Reykjaneshöllinni.
Athugasemdir