Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 05. febrúar 2016 15:26
Magnús Már Einarsson
Landsliðsmarkvörður El Salvador til ÍBV (Staðfest)
Mynd: ÍBV
ÍBV hefur gert þriggja ára samning við markvörðinn Derby Carillo en félagið tilkynnti þetta nú rétt í þessu.

ÍBV ákvað að semja við Derby eftir að ljóst var að Abel Dhaira yrði ekki með liðinu í sumar vegna meiðsla.

Derby á 11 landsleiki fyrir El Salvador og því samlandi Pablo Punyed sem kom til ÍBV frá Stjörnunni í vetur.

Hinn 28 ára gamli Derby hefur spilað 82 deildarleiki í Bandaríkjunum og El Salvador á ferlinum.

„ÍBV væntir mikils af Derby og býður hann velkominn til eyja," segir í tilkynningu frá ÍBV.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner