Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 05. febrúar 2016 11:04
Magnús Már Einarsson
Myndband: Roberto Martinez í stuði á Jason Derulo tónleikum
Mynd: Getty Images
Roberto Martinez, stjóri Everton, kíkti á tónleika með Jason Derulo í Manchester í gær.

Myndband á netinu hefur vakið athygli í dag en þar sést Martinez taka dansspor á tónleikunum. Myndbandið má sjá hér að neðan.

Martinez staðfesti á fréttamannafundi í dag að myndbandið sé af honum.

„Ég er mikill aðdáandi (Derulo). Ég hrífst alltaf af skapandi fólki," sagði Martinez en hann segist vera betri dansari en myndbandið sýnir.

„Ég á betri spor, trúið mér. Þetta voru líklega verstu sporin sem ég tók," grínaðist Martinez.

Myndbandið má sjá hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner