Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 05. febrúar 2016 10:27
Magnús Már Einarsson
Rosicky frá í þrjá mánuði - Búinn með síðasta leik fyrir Arsenal?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tomas Rosicky, miðjumaður Arsenal, verður frá keppni í allt að þrjá mánuði vegna meiðsla á læri.

Hinn 35 ára gamli Rosicky verður samningslaus í sumar og því gæti hann hafa leikið sinn síðasta leik með Arsenal.

„Ég vona að það sé ekki tilfellið en meiðslin eru nokkuð alvarleg," sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal.

Rosicky meiddist gegn Burnley um síðustu helgi en það var fyrsti leikur hans fyrir Arsenal í heila sjö mánuði.

Rosicky á 246 leiki að baki með Arsenal en Tékkinn kom til félagsins Borussia Dortmund árið 2006.
Athugasemdir
banner
banner
banner