fös 05. febrúar 2016 10:20
Magnús Már Einarsson
Scott Ramsay og Ray Anthony þjálfa GG (Staðfest)
Vilmundur Þór Jónasson varaformaður, Ray Anthony Jónsson, Scott Ramsay og Heimir Daði formaður við undirskrift.
Vilmundur Þór Jónasson varaformaður, Ray Anthony Jónsson, Scott Ramsay og Heimir Daði formaður við undirskrift.
Mynd: GG
Scott Ramsay og Ray Anthony Jónsson ætla í sameiningu að stýra GG í 4. deildinni í sumar.

GG, frá Grindavík, verður með lið í deildarkeppninni í fyrsta skipti í áraraðir í sumar. Liðið spilar sinn fyrsta leik í langan tíma á morgun þegar það mætir Þrótti Vogum í æfingaleik.

Scott og Ray spiluðu báðir með Grindavík um áraraðir og þeir munu nú spreyta sig í þjálfun.

Hinn fertugi Scott kom fyrst til Íslands árið 1997 en hann lék sína síðustu leiki með Grindavík síðastliðið sumar.

Ray er 36 ára og hefur leikið lengi með Grindavík en hann á að baki landsleiki með landsliði Filippseyja.

Auk þess að þjálfa liðið þá ætla Scott og Ray að spila með GG en félagið verður í samstarfi við lið Grindavíkur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner