Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   fös 05. febrúar 2016 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn um helgina - Pressan er á Gary Neville
Mynd: Getty Images
Helgin í spænska boltanum hefst á viðureign Malaga og Getafe í kvöld, en bæði lið eru um miðja deild.

Atletico Madrid tekur á móti Eibar í fyrsta leik laugardagsins áður en Villarreal heimsækir Athletic Bilbao. Villarreal getur jafnað Real Madrid í 3. sæti deildarinnar með sigri.

Barcelona heimsækir Levante fyrir hádegi á sunnudaginn, áður en Valencia heimsækir Real Betis. Valencia þarf sigur gegn Betis, enda er starf Gary Neville við stjórnvölinn þar í mikilli hættu eftir 7-0 tap gegn Barcelona á dögunum.

Celta Vigo á leik við Sevilla og lýkur sunnudeginum á viðureign Granada og Real Madrid, sem verður sýnd beint á Stöð 2 Sport.

Espanyol mætir Real Sociedad í síðasta leik helgarinnar, en Espanyol er tveimur stigum frá fallsæti og Sociedad tveimur stigum þar fyrir ofan.

Föstudagur:
19:30 Malaga - Getafe

Laugardagur:
15:00 Atletico Madrid - Eibar
17:15 Rayo Vallecano - Las Palmas
19:30 Athletic Bilbao - Villarreal
21:05 Sporting Gijon - Deportivo La Coruna

Sunnudagur:
11:00 Levante - Barcelona (Stöð 2 Sport)
15:00 Real Betis - Valencia
17:15 Celta Vigo - Sevilla
19:30 Granada - Real Madrid (Stöð 2 Sport)

Mánudagur:
19:30 Espanyol - Real Sociedad
Stöðutaflan Rússland Efsta deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Zenit 20 12 4 4 39 18 +21 40
2 FK Krasnodar 20 11 6 3 30 17 +13 39
3 Dinamo 20 10 8 2 33 23 +10 38
4 CSKA 20 8 8 4 34 25 +9 32
5 Lokomotiv 20 8 8 4 32 27 +5 32
6 Spartak 20 9 4 7 27 26 +1 31
7 Kr. Sovetov 20 8 5 7 36 31 +5 29
8 Rubin 20 8 5 7 18 23 -5 29
9 Nizhnyi Novgorod 20 8 4 8 17 17 0 28
10 Rostov 20 7 6 7 28 30 -2 27
11 Fakel 20 6 7 7 18 20 -2 25
12 Akhmat Groznyi 20 5 5 10 19 25 -6 20
13 Orenburg 20 4 7 9 21 29 -8 19
14 Ural 20 5 4 11 19 33 -14 19
15 Baltica 20 3 5 12 12 25 -13 14
16 Sochi 20 3 4 13 19 33 -14 13
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner