Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mán 05. febrúar 2018 23:01
Ívan Guðjón Baldursson
Helgi Sig: Erfitt að vinna ef þú færð þrjú mörk á þig
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Helgi Sigurðsson er stoltur af frammistöðu sinna manna eftir 3-2 tap gegn Fjölni í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins.

Fylkismenn voru sérstaklega öflugir í síðari hálfleik og óheppnir að skora ekki fleiri mörk.

„Þetta var mjög skemmtilegur leikur. Það voru fimm mörk og fullt af færum og svoleiðis á þetta að vera á þessum tíma. Bæði lið lögðu mikið í þetta og ætluðu sér sigur," sagði Helgi.

„Það er erfitt að vinna fótboltaleik ef þú færð þrjú mörk á þig. Það er ekki líkt okkur að leyfa þeim að skora svona auðveld mörk. Ég held að þetta sé í fyrsta skipti síðan ég tók við sem við fáum 3 mörk á okkur í mótsleik."

Helgi segir nafna sinn, Helga Val Daníelsson, byrja að æfa með liðinu í vikunni. Helgi Valur verður 37 ára í sumar en hann á farsælan feril að baki og hefur leikið 33 A-landsleiki.

„Þetta er góð viðbót við góðan hóp. Við teljum okkur vera með góðan hóp og viljum byggja á ungu strákunum og gefa þeim sénsa. Auðvitað er það alltaf þannig að ef einhver góður leikmaður vill koma til okkar þá skoðum við það."
Athugasemdir
banner
banner