fim 05. mars 2015 18:00
Magnús Már Einarsson
Liverpool fær 1,4 stigi meira þegar Gerrard byrjar ekki
Gerrard er 34 ára.
Gerrard er 34 ára.
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur verið á miklu flugi í ensku úrvalsdeildinni að undanförnu en liðið hefur ekki tapað leik á þessu ári.

Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, hefur ekki verið í jafn stóru hlutverki og áður á þessu tímabili. Tölfræðin segir líka að Liverpool gangi mun betur þegar Gerrard er ekki í byrjunarliðinu.

Liverpool hefur fengið 2,8 stig að meðaltali í þeim átta leikjum sem Gerrard hefur ekki byrjað.

Í þeim tuttugu leikjum í úrvalsdeildinni sem Gerrard hefur byrjað er Liverpool hins vegar með 1,4 stig að meðaltali.

Gerrard hefur misst af síðustu þremur leikjum vegna meiðsla en spurning er hvort að hann eigi afturkvæmt í byrjunarliðið þegar hann snýr aftur á næstu vikum.
Athugasemdir
banner
banner