Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 05. mars 2015 19:00
Magnús Már Einarsson
Stiliyan Petrov í þjálfaralið Aston Villa
Stilyan Petrov.
Stilyan Petrov.
Mynd: Getty Images
Tim Sherwood hefur ákveðið að fá Stiltyan Petrov inn í þjálfaralið Aston Villa.

Hinn 35 ára gamli Petrov lék með Aston Villa frá 2006 til ársins 2012 þegar hann greindist með hvítblæði.

Petrov varð að leggja skóna á hilluna af þeim sökum en hann hefur nú náð sér af veikindunum.

,,Ég myndi aldrei fá hann til baka til að vera eitthvað lukkudýr," sagði Sherwood.

,,Hann er mjög klár og ég vil fá hann til starfa eins fljótt og hægt er. Stan mun alltaf eiga sitt pláss hjá þessu félagi á meðan ég er stjóri."
Athugasemdir
banner
banner
banner