,,Það er ljóst að þessi línuvörður er búinn með laseraðgerð en það getur vel verið að hann hafi verið inni," sagði Sigurbjörn Hreiðarsson þjálfari Hauka eftir 2-1 tap liðsins gegn Víkingi R. í Lengjubikarnum í dag.
Alan Löwing skoraði markið eftir hornspyrnu undir lokin en Haukar vildu meina að boltinn hefði ekki verið inni.
Alan Löwing skoraði markið eftir hornspyrnu undir lokin en Haukar vildu meina að boltinn hefði ekki verið inni.
,,Þetta var jafn leikur en við töpuðum á þessu mómenti. Við fengum færi til að komast yfir í seinni hálfleikinn en þetta er ekki að falla með okkur þessa dagana. Við eigum eitthvað af mönnum inni og verðum klárir þegar mótið byrjar."
Bandaríkjamaðurinn Mike Burke er á reynslu hjá Haukum og hann gæti samið við liðið.
,,Hann lítur mjög vel út. Hann hefur komið fínt inn," sagði Sigurbjörn sem var sjálfur á meðal varamanna í dag.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir