Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. maí 2015 23:15
Elvar Geir Magnússon
Griezmann til Chelsea í sumar?
Griezmann til Lundúna?
Griezmann til Lundúna?
Mynd: Getty Images
Chelsea er farið að skoða möguleika á að styrkja lið sitt fyrir næsta tímabil og hyggst reyna að fá sóknarleikmanninn Antoine Griezmann frá Atletico Madrid.

Franski landsliðsmaðurinn kom í stað Diego Costa á Vicente Calderon og hefur leikið afar vel í Spánarsparki tímabilsins.

Petr Cech, Filipe Luis og Didier Drogba gætu verið á útleið og þá vill Mourinho fá menn í þeirra stað. Brasilíski bakvörðurinn Luis gæti farið aftur til Atletico.

Griezmann hefur skorað 25 mörk síðan hann var keyptur til Atletico fyrir 23 milljónir punda frá Real Sociedad í júlí í fyrra. Hann gerði sex ára samning þá.

Aðrir leikmenn sem Chelsea er með í skoðun eru Alexandre Lacazette framherji Lyon, Raphael Varane varnarmaður Real Madrid og markvörðurinn Vicente Guaita hjá Getafe.
Athugasemdir
banner
banner