Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 05. maí 2015 17:14
Magnús Már Einarsson
Guardiola: Messi er óstöðvandi
Smeykur við Messi.
Smeykur við Messi.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, þjálfari FC Bayern, segir að Lionel Messi sé óstöðvandi um þessar mundir.

Guardiola kíkir á sinn gamla heimavöll Nou Camp annað kvöld þegar FC Bayern mætir Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.

Messi hefur farið á kostum á þessu ári og Guardiola segir að það sé ekki hægt að stöðva hann.

„Eins og hann er að spila núna þá getur engin vörn stöðvað hann," sagði Guardiola.

„Hann hefur verið óstöðvandi eins og hann hefur spilað síðustu þrjá til fjóra mánuðina. Það er ekki hægt að verjast svona hæfileikum."
Athugasemdir
banner
banner
banner