HK hefur fengið varnarmanninn Guðmund Þór Júlíusson í sínar raðir frá Fjölni.
Guðmundur var á láni hjá HK síðari hlutann á síðasta tímabili. Guðmundur er uppalinn Fjölnismaður en hann er fæddur árið 1993.
Guðmundur var á láni hjá HK síðari hlutann á síðasta tímabili. Guðmundur er uppalinn Fjölnismaður en hann er fæddur árið 1993.
„Hann hefur æft með okkur núna í 2-3 vikur," sagði Þorvaldur Örlygsson þjálfari HK við Fótbolta.net í dag.
HK fékk einnig Einar Loga Einarsson í sínar raðir frá ÍA í gær.
„Hópurinn hefur styrkst og bætt sig og svo er spurning hvernig menn standa sig í sumar."
HK mætir Gróttu í 1. umferðinni í 1. deildinni á föstudag en Guðmundur og Einar Logi gætu komið við sögu þar.
Athugasemdir