Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 05. maí 2015 09:34
Hafliði Breiðfjörð
Hendrickx ekki brotinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jonathan Hendrickx, hægri bakvörður FH, er ekki ökklabrotinn eins og óttast var.

Hendrickx var borinn af velli í 3-1 sigri FH á KR í gærkvöldi og meiðslin litu afar illa út.

„Hann er ekki brotinn samkvæmt myndunum,“ sagði Jón Rúnar Halldórsson formaður knattspyrnudeildar FH við 433.is í morgun.

Ekki er ennþá ljóst hversu lengi Belginn verður frá keppni.

„Hann fer til bæklunarlæknis í dag og þá sjáum við betur hvernig þetta er. Hvort það sé slitið eitthvað eða ekki, það sást ekki nógu vel á þessum myndum.“
Athugasemdir
banner
banner