Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 05. maí 2015 11:57
Arnar Daði Arnarsson
Pepsi-deildin
Kristján Flóki birtir skemmtilega mynd af Bödda Löpp
,,No words needed
,,No words needed" - segir Flóki.
Mynd: Twitter
Kristján Flóki Finnbogason, framherji FH setti rétt í þessu skemmtilega mynd inn á Twitter.

Þar birtir hann mynd af Böðvari Böðvarssyni, Bödda löpp, með textanum "KR reyna að skora...Ég bjarga á línu" og vitnar hann þar í björgun Böðvars á línu í stórleik gærkvöldsins í Pepsi-deild karla.

Þar mættust KR og FH í fyrstu umferð Pepsi-deildar karla þar sem gestirnir úr Hafnarfirði höfðu betur 3-1 eftir að hafa lent 1-0 undir.

Í stöðunni 1-1 bjargaði Böðvar FH-ingum á frábæran hátt, eftir að skalli Sören Frederiksen var á leið í mark FH-inga, en þá kom löpp, Bödda vel á notum og hreinsaði hann frá á síðustu stundu.

Hægt er að sjá tvít Kristjáns hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner