Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 05. maí 2015 18:30
Magnús Már Einarsson
Lewandowski spilar með grímu á morgun
Mynd: Getty Images
Robert Lewandowski mun spila með grímu þegar FC Bayern mætir Barcelona í Meistaradeildinni annað kvöld.

Lewandowski kjálka og nefbrotnaði í leik gegn sínum gömlu félögum í Dortmund í síðustu viku.

Pólverjinn æfði með grímu í gær og hann verður klár í slaginn á morgun.

„Þetta er í góðu lagi. Við skoðum hvernig þetta verður en ég hræðist ekkert," sagði Lewandowski.

Leikurinn á morgun fer fram á Nou Camp en Bayern verður án Arjen Robben, Franck Ribery, David Alaba og Holger Badstuber sem eru meiddir.
Athugasemdir
banner
banner