Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   þri 05. maí 2015 15:30
Elvar Geir Magnússon
Wilshere: Mikilvægt að landa öðru sætinu
Mynd: Getty Images
Jack Wilshere er mættur aftur eftir meiðsli og spilaði 25 mínútur í 3-1 sigri Arsenal gegn Hull í ensku úrvalsdeildinni í gær. Hann segist ákveðinn í að hjálpa Arsenal að ná silfurverðlaunum.

„Ég tel mikilvægt fyrir okkur að ná öðru sætinu. Það gefur skilaboð fyrir næsta tímabil og sýnir að við séum að taka skref í rétta átt," segir þessi 23 ára miðjumaður.

„Síðustu tvö tímabil höfum við endað í fjórða sæti og það gæti gefið okkur mikið sjálfstraust að ná að vera tveimur sætum ofar en það."

„Það mikilvægasta fyrir mig var að ná að spila aftur. Erfiðisvinna úr ræktinni hefur skilað sér," segir Wilshere en hér að neðan má sjá stöðuna.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner