Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 05. maí 2016 11:31
Jóhann Ingi Hafþórsson
Albert Guðmundsson nældi í víti gegn Villarreal
Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson.
Mynd: Getty Images
Albert Guðmundsson spilaði með U-21 liði PSV gegn jafnöldrum sínum í Villarreal í dag.

Villarreal liðið komst yfir í fyrri hálfleik áður en PSV náði að snúa leiknum sér í vil og komast í 2-1 í seinni hálfleik en jöfnunarmarkið kom úr vítaspyrnu sem Albert nældi í .

Allt kom þó fyrir ekki hjá hollenska liðinu því þeir misstu mann af velli með rautt spjald og nýtti spænska liðið sér það afar vel.

Lokatölur urðu 4-2. Albert hefur verið að spila vel fyrir U-21 liðið og verður spennandi að sjá strákinn á næstu árum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner