AGF frá Árósum og FC Copenhagen mættust í úrslitaleik danska bikarsins í dag en leikið var á Parken.
Theodór Elmar Bjarnason var að venju í byrjunarliði AGF gegn stórveldinu í Kaupmannahöfn.
Liðið úr höfuðborginni byrjaði betur og komust yfir með marki Nicolai Jorgensen eftir tæplega hálftíma leik og staðan orðin 1-0.
AGF liðið gafst ekki upp og náði að jafna fyrir hálfleik með marki frá Morten Rasmussen. Staðan var 1-1 alveg fram að 78.mínútu þegar að Will Kvist skoraði sigurmarkið fyrir Kaupmannarhafnar liðið.
Athugasemdir