Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 05. maí 2016 14:23
Jóhann Ingi Hafþórsson
Huth og Fellaini fara báðir í leikbann
Robert Huth og Fellaini.
Robert Huth og Fellaini.
Mynd: Getty Images
Robert Huth og Marouane Fellaini fara báðir í þriggja leikja bann.

Þegar Manchester United fékk Leicester í heimsókn um síðustu helgi áttust leikmennirnir við í skallaeinvígi. Robert Huth togaði þá í hár Belgans sem svaraði með að gefa Huth olnbogaskot í andlitið.

Louis van Gaal, þjálfari Manchester United, er eflaust ósáttur við þessa niðurstöðu en hann líkti gjörðum Huth við kynlífsathafnir.

Huth missir því af síðustu tveimur leikjum Leicester á tímabilinu ásamt fyrsta leik næstu leiktíðar. Fellaini missir af þrem síðustu deildarleikjum liðsins á leiktíðinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner