Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 05. maí 2016 21:40
Arnar Geir Halldórsson
Klopp: Basel er falleg borg
Gaman hjá Klopp í kvöld
Gaman hjá Klopp í kvöld
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var sigurreifur eftir að hafa séð sína menn gjörsigra Villarreal í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld.

Klopp hrósaði liði sínu í hástert og er orðinn spenntur fyrir úrslitaleiknum sem fram fer í Basel í Sviss þann 18.maí næstkomandi.

„Stórkostlegt kvöld. Þetta var frábær leikur hjá mínu liði. Þvílík frammistaða. Það voru miklar tilfinningar í spilunum fyrsta hálftímann og það var gaman að fylgjast með því."

„Við misstum okkur aðeins undir lok fyrri hálfleiks og í hálfleik ræddum við um að halda haus og það gekk svo sannarlega upp."

„Þegar ég kom hingað voru allir að tala um að liðið væri ekki nógu gott að það hefðu verið gerð slæm kaup en ég kom hingað af því að mér leist vel á leikmannahópinn og nú erum við komnir til Basel. Basel er falleg borg, nærri mínum heimabæ,"
sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner