Tveir leikir fóru fram í norska bikarnum í dag og voru Íslendingar í eldlínunni í báðum leikjum.
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson stóð á milli stanganna þegar Bodö/Glimt vann öruggan 4-1 sigur á C-deildarliði Alta.
Kristinn Jónsson lék allan leikinn fyrir Sarpsborg í 3-1 sigri á botnliði norsku B-deildarinnar, Fredrikstad, en leikið var á heimavelli síðarnefnda liðsins.
Bodö/Glimt og Sarpsborg voru þar með síðustu liðin til að tryggja sér farseðil í 16-liða úrslitin en áður höfðu Íslendingaliðin Rosenborg og Tromsö komist áfram úr 32-liða úrslitunum.
Athugasemdir