Zlatan Ibrahimovic gæti farið aftur í AC Milan í sumar en þetta segir umboðsmaður leikmannsins.
Allar líkur eru á að Svíjinn fari frá PSG þar sem samningurinn hans við félagið rennur út í sumar.
Zlatan hefur áður sagst hafa áhuga á að fara til Manchester United en aðeins ef Louis van Gaal yfirgefi félagið en umboðsmaðurinn segir Ítalíu vera líklegan næsta áfangastað.
„Ibra gæti farið aftur til Ítalíu og Milan," sagði Mino Raiola en hann er einnig umboðsmaður Mario Balotelli og Paul Pogba.
Athugasemdir