Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 05. júlí 2015 17:35
Björgvin Stefán Pétursson
Eiður Smári til Shijiazhuang Ever Bright (Staðfest)
Eiður spilar ekki í þessari treyju á næsta tímabili.
Eiður spilar ekki í þessari treyju á næsta tímabili.
Mynd: Getty Images
Nú er það staðfest að Eiður Smári Guðjohnsen hefur samið við Shijiazhuang Ever Bright í Kína út árið. Þetta staðfesti Eiður á Facebook síðu sinni rétt í þessu.

Eiður Smari mun þá spila í kínversku deildinni og hittir þar fyrir félaga sína úr landsliðinu þá Sölva Geir Ottesen og Viðar Örn Kjartansson.

Eiður spilaði með Bolton á síðasta tímabili og var Neil Lennon stjóri Bolton búinn að lýsa því yfir af félagið myndi vilja semja aftur við Eið Smára.

En Eiður ákvað að taka skrefið til Kína og mun þar leika með Shijiazhuang Ever Bright sem að sitja í 8.sæti ofurdeildarinnar.

Næsti leikur liðsins er 12.júlí og verður gaman að sjá hvort að Eiður spili þar sinn fyrsta leik.
Athugasemdir
banner
banner