Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 05. júlí 2015 21:53
Björgvin Stefán Pétursson
Gary Martin kláraði FH
Gary í leik gegn FH
Gary í leik gegn FH
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
KR og FH áttust við í stórleik 8-liða úrslita í Borgunarbikarnum í kvöld.

KR komust yfir snemma leiks með marki frá Óskari Erni Haukssyni eftir skelfileg mistök hjá Kassim Doumbia.

FH svaraði um hæl og þar var á ferðinni enginn annar en sjálfur Kassim Doumbia.

Leikurinn var í járnum þangað til Gary Martin stakk Pétur Viðarsson af og skoraði úr þröngu færi framhjá Róberti Erni Óskarssyni. 2-1 fyrir KR og þannig endaði leikurinn.

KR-ingar eru því komnir í undanúrslit eins og Valur og ÍBV. En KA og Fjölnir mætast á morgun í síðasta leik 8-liða úrslita.

KR 2 - 1 FH
1-0 Óskar Örn Hauksson ('15)
1-1 Kassim Doumbia ('17)
2-1 Gary John Martin ('61)

Athugasemdir
banner
banner
banner