Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 05. júlí 2015 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Sporting Life 
Jonathan Bond til Reading (Staðfest)
Jonathan Bond
Jonathan Bond
Mynd: Getty Images
Enski unglingalandsliðsmarkvörðurinn, Jonathan Bond, er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Reading.

Bond kemur frá Watford, en þar var hann varmarkvörður fyrir Heurelho Gomes.

"Jonathan var á því stigi ferils síns, að hann þurfti nýja áskorun og tækifæri til að sanna sig sem byrjunarliðsmarkvörður," sagði Steve Clarke stjóri Reading eftir komu Bond til félagsins.

"Jonathan hefur alla þá eiginleika sem þarft til að komast á toppinn og það er okkar markmið að koma honum þangað."

Kaupverðið á Bond er ekki gefið upp, en talið er að það sé eitthvað í kringum 250.000 pund.
Athugasemdir
banner
banner