Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 05. júlí 2015 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Mirror 
Man Utd vonast til að landa Schneiderlin í næstu viku
Morgan Schneiderlin
Morgan Schneiderlin
Mynd: Getty Images
Man Utd vonast til að klára kaupin á Morgan Schneiderlin í næstu viku, en þetta segir í frétt Mirror.

Þar sem að Southampton er á leið í æfingaferð til Austurríkis og Hollands og Man Utd á leið til Bandaríkjanna, vilja félögin því að framtíð hans ráðist eins fljótt og hægt er.

Man Utd gerði 20 milljón punda tilboð í Schneiderlin á dögunum, en því var hafnað.

Talið er að Southampton vilji 25 milljónir punda fyrir franska miðjumanninn.

Ef að kaupin ganga í gegn, verða það önnur kaup Man Utd í sumar, en áður hafði Memphis Depay gengið til liðs við félagið frá PSV.
Athugasemdir
banner
banner
banner