Heimild: Sky Sports
Sergio Ramos, varnarmaður Real Madrid, sagði í samtali við spænska sjónvarpið að hann væri ekki í viðræðum við neinn, þrátt fyrir orðróma um annað.
Ramos hefur verið orðaður við Man Utd og er sagður ákveðinn í því að yfirgefa Real Madrid eftir tíu ára dvöl í spænsku höfuðborginni.
Ramos hefur verið orðaður við Man Utd og er sagður ákveðinn í því að yfirgefa Real Madrid eftir tíu ára dvöl í spænsku höfuðborginni.
Man Utd gerði tilboð í Ramos í síðustu viku og talið er að hann sé mjög spenntur fyrir því. Hann vill þó ekkert gefa upp í fjölmiðlum.
"Ég er ekki í viðræðum við neinn," sagði hann í samtali við Canal Cuatro.
Þá var hann spurður hvort hann yrði áfram hjá Real fyrir vikið. "Það er allt í góðu," sagði Ramos þá.
Ramos hefur spilað 313 deildarleiki fyrir Real Madrid, síðan hann gekk til liðs við félagið frá Sevilla árið 2005.
Athugasemdir