Heimild: Real Sociedad
Real Sociedad hefur náð samkomulagi við Deportivo Maldonado um að framlengja lánssamning við Geronimo Rulli um eitt ár.
Rulli varði mark Sociedad á síðustu leiktíð og vakti athygli fyrir góða frammistöðu. Í kjölfarið hefur Valencia reynt að ná samkomulagi við Deportivo Maldonado en nú hefur það verið staðfest að hann verður áfram í herbúðum Sociedad.
Á heimasíðu Sociedad er sagt frá því að hann muni ferðast með liðinu til Austurríkis á morgun þar sem liðið mun verða við æfingar næstu daga.
Rulli er 23 ára Argentínumaður en hann er í eigu úrúgvæska B-deildarliðsins Deportivo Maldonado.
Eins og flestir vita leikur Alfreð Finnbogason með Sociedad en framtíð hans er í óvissu þessa dagana þar sem hann hefur verið orðaður við önnur lið.
Athugasemdir