Fjórir leikir fóru fram í sænska boltanum í dag.
Falkensberg og Elfsborg skildu jöfn 2-2.
GIF Sundsvall lenti 2-0 undir gegn Gautaborg á heimavelli en komu til baka og jöfnuðu leikinn 2-2. Seinna mark Sundsvall skoraði Rúnar Már Sigurjónsson.
Hjálmar Jónsson lék allan leikinn fyrir Gautaborg og það sama gerðu Jón Guðni Fjóluson og Rúnar Már Sigurjónsson fyrir Sundsvall.
Hacken sigraði Helsingborg 3-2 á heimavelli þar sem Guðlaugur Victor Pálsson skoraði annað mark Helsingborg og kom þeim í 2-1 en Hacken kom til baka og sigraði.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson sat allan leikinn á varamannabekk Hacken.
Kalmar og AIK gerðu markalaust jafntefli þar sem að Haukur Heiðar spilaði allan leikinn og nældi sér í gult spjald snemma leiks.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir