Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 05. ágúst 2015 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: 101gg 
Bild: Baba til Chelsea fyrir 14 milljónir punda
Mynd: Getty Images
Þýski fjölmiðillinn Bild segir vinstri bakvörðinn Abdul Rahman Baba vera á leið til Chelsea fyrir 14 milljónir punda.

Baba er 21 árs gamall og á ellefu landsleiki að baki fyrir Gana. Baba er búinn að vera leikmaður Augsburg í eitt ár og lék næstum því hvern einasta deildarleik fyrir liðið sem lauk keppni í 5. sæti og fer því beint í riðlakeppni Evrópudeildarinnar.

Roma og Arsenal hafa verið orðuð við bakvörðinn en hann hefur sagst vilja ganga í raðir Chelsea oftar en einu sinni eftir að hann heyrði af áhuga frá Englandsmeisturunum.

Samkvæmt Bild eru allir aðilar sáttir og komnir að samkomulagi og ætti Baba að gangast undir læknisskoðun í höfuðborginni á næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner