Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 05. ágúst 2015 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Sky 
Ellefu mörk í fyrsta leik - Man ekki hversu mörg hún lagði upp
Suzanne Grant er 31 árs gömul og á 104 landsleiki að baki fyrir Skotland. Hún hefur spilað fyrir kvennalið Glasgow, Celtic og Arsenal á ferlinum auk Keynsham og Hibernian.
Suzanne Grant er 31 árs gömul og á 104 landsleiki að baki fyrir Skotland. Hún hefur spilað fyrir kvennalið Glasgow, Celtic og Arsenal á ferlinum auk Keynsham og Hibernian.
Mynd: Getty Images
Suzanne Grant spilaði sinn fyrsta keppnisleik fyrir skoska þriðjudeildarliðið Motherwell er liðið lagði Edinburgh South á sunnudaginn.

Motherwell vann leikinn 21-0 og skoraði Grant ellefu mörk í leiknum og lagði nokkur upp en man þó ekki hversu mörg hún lagði upp.

Motherwell er á toppi deildarinnar með 30 stig eftir 10 umferðir og markatöluna 125-3. Liðið hefur verið að sanka að sér öflugum leikmönnum og er spáð að það fari beint upp í 2. deild og þaðan í efstu deild án teljandi vandræða.

,Ég held ég hafi aldrei skorað svona mörg mörk í einum leik. Ég átti nokkrar stoðsendingar en man ekki alveg hversu margar," sagði Grant eftir leikinn.

„Ég hef spilað á hærra stigi allan minn feril og ég finn fyrir pressu til að skora þegar ég er að spila með neðrideildarliði.

„Ég hefði verið ánægð með eitt mark, hvað þá ellefu, þetta er frábær byrjun með Motherwell."

Athugasemdir
banner
banner
banner