Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   lau 05. september 2015 08:30
Alexander Freyr Tamimi
Eyjólfur Sverris: Mikil stemning í þjóðfélaginu
Eyjólfur Sverrisson er vel gíraður.
Eyjólfur Sverrisson er vel gíraður.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Eyjólfur Sverrisson, U21 landsliðsþjálfari Íslands, er spenntur fyrir leiknum gegn Frakklandi í undankeppni EM 2017 sem fram fer á Kópavogsvelli klukkan 14:00 í dag.

Fótbolti.net ræddi við Eyjólf á æfingu landsliðsins í gær, en lið Frakklands er fullt af stjörnum sem spila í stærstu deildum Evrópu.

„Við erum bara virkilega vel gíraðir. Það er stemning í hópnum og mikil stemning í þjóðfélaginu í rauninni, það er mikil tilhlökkun," segir Eyjólfur við Fótbolta.net.

Íslenska A-landsliðið vann frábæran 1-0 útisigur gegn Hollandi í gærkvöldi og Eyjólfur segir að það hveti yngri leikmennina til dáða.

„Þá sjá menn líka hvað þetta er nálægt og þessi möguleiki er alltaf til staðar, og þeir vita það og við höfum notað það lengi vel á þessa stráka að stór hluti af þessu A-liði sem vann Þjóðverja á sínum tíma, stór hluti af því liði sem við spiluðum á móti eru heimsmeistarar í dag. Það er gott að þeir viti að það er stutt í alvöru fótboltamenn," bætti Eyjólfur við.

„Þeir eru með mikið af leikmönnum sem eru í efstu deild í Englandi og Hollandi og Frakklandi, en við stefnum á sigur og við erum með leikjaplan."
Athugasemdir
banner
banner
banner