Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 05. september 2015 08:00
Arnar Geir Halldórsson
Myndband: Ömurlegur leikaraskapur Candreva
Lélegur leikari
Lélegur leikari
Mynd: Getty Images
Antonio Candreva, miðjumaður ítalska landsliðsins, varð sjálfum sér til skammar í leik liðsins gegn Möltu í undankeppni EM á fimmtudag.

Candreva, sem leikur með Lazio, sýndi þá vægast sagt lélega leikræna tilburði þegar hann var kominn inn í vítateig andstæðinganna.

Dómari leiksins sá við honum og færði honum gult spjald að launum fyrir þessa dýfu sem má sjá hér fyrir neðan.

Ítalir unnu leikinn með einu marki gegn engu þar sem framherji Southampton, Graziano Pelle, reyndist hetja liðsins.


Athugasemdir
banner
banner