Heimild: Trottur.is
Þórir Hákonarson, fyrrverandi framkvæmdastjóri KSÍ, hefur verið ráðinn sem íþróttastjóri Þróttar R.
Þórir starfaði í átta ár hjá KSÍ áður en hann lét af störfum fyrr á þessu ári og ljóst að hann þekkir mikið til innan knattspyrnu- og íþróttaheimsins á Íslandi.
Þórir starfaði í átta ár hjá KSÍ áður en hann lét af störfum fyrr á þessu ári og ljóst að hann þekkir mikið til innan knattspyrnu- og íþróttaheimsins á Íslandi.
Þórir tekur til starfa á spennandi tímum hjá Þrótturum sem eru í æsispennandi toppbaráttu í 1. deildinni.
Þróttur er í 3. sæti deildarinnar, með jafn mörg stig og KA sem er í öðru sæti þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir af tímabilinu.
Annað sætið gefur þátttökurétt í Pepsi-deild karla og eru Þróttarar taldir eiga talsvert auðveldari leiki framundan heldur en KA-menn.
Athugasemdir