Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 05. október 2015 15:00
Magnús Már Einarsson
Juan Mata: Eigum ekki að spila aftur svona
Mynd: Getty Images
Juan Mata, leikmaður Manchester United, segir að liðið verði að læra af 3-0 tapinu gegn Arsenal í gær. Arsenal skoraði öll mörkin á fyrstu tuttugu mínutunum.

„Arsenal byrjaði af meiri krafti, þeir skoruðu mjög fljótt og skoruðu strax annað mark án þess að við næðum að bregaðst við," sagði Mata á bloggsíðu sinni í dag.

„Það voru ekki tiu mínútur búnar þegar hlutirnir litu mjög illa út."

„Svona byrjun hjá okkur er óásættanleg, ef við vijum berjast um stóra hluti þá verðum við að læra af þessu sem fyrst."

„Það eina sem ég get get sagt er að við eigum ekki að spila svona leik aftur."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner